Sjö leiðir til að setja upp snyrtiaðstöðu

Besti staðurinn til að gera sig til er nákvæmlega þar sem þér hentar! Léttu á baðherberginu og útbúðu góða aðstöðu í svefnherberginu – eða jafnvel í forstofunni. Aðstaðan þarf ekki að taka mikið pláss; byrjaðu á góðri lýsingu og spegli og láttu ímyndunaraflið sjá um rest. Nýttu þér þessar sjö hugmyndir til að veita þér innblástur.

1. Staldraðu við

Hér er glæsilegt snyrtiborð sem heldur utan um fleira en bara snyrtivörurnar. Hvíta TONSTAD skrifborðið kemur vel út á litríkum vegg með spegli í náttúrulegum viðarlit og skapar þannig flott yfirbragð í bóhemstíl. Stílhreinar skrifborðshirslur auðvelda þér að halda utan um snyrtivörurnar og skúffan geymir allt annað. Bættu við þægilegum stól og gerðu þetta notalega horn að þínum uppáhaldsstað þar sem þú getur slakað á með tebolla og jafnvel dagbók.

2. Í litlu rými þarftu bara hillu – eða hirslutöflu!

Hver segir að þú þurfir borð fyrir snyrtiaðstöðuna? Lítil hilla eða SKÅDIS hirslutafla ásamt spegli getur hentað fullkomlega þegar plássið er af skornum skammti. Raðaðu snyrtivörunum í ílát eða minni hirslur svo þær taki sig vel út á hillunni eða töflunni. Bættu við snaga eða tveimur til að búa til pláss fyrir nokkra vel valda skartgripi og settu svo punktinn yfir i-ið með góðri lýsingu. Þú ert klár í daginn!

Ofurhetjur fyrir snyrtiaðstöðu í litlu rými

3. Breyttu kommóðunni í snyrtiborð

Gefðu kommóðunni nýtt líf með því að breyta henni í snyrtiborð. Haltu útlitinu einföldu og persónulegu með nokkrum vel völdum hlutum á borðinu og komdu svo restinni af snyrtivörunum og fylgihlutunum fyrir í litlum kössum í skúffunum. Skreyttu vegginn fyrir ofan kommóðuna með stórum spegli og þá er allt til alls þegar þú vilt hafa þig til.

 

Skoðaðu kommóður

Skoðaðu allar kommóður

4. Ekkert pláss? Notaðu gluggakistuna!

Ertu ekki með pláss fyrir snyrtiborð? Gluggakistan kemur til bjargar! Settu stækkunarspegil á hana til að útbúa ofurlítið snyrtiborð. Það er frábært að farða sig í náttúrulegri birtu en lítill ljóskastari getur bætt um betur. Hafðu snyrtivörurnar við höndina á hjólavagni sem hægt er að ýta úr vegi þegar þú þarft ekki lengur á þeim að halda.

 

Skoðaðu spegla

Skoðaðu spegla

5. Náttborð á dagvakt

Náttborð á nóttunni, snyrtiborð á daginn! Með réttu húsgögnunum og fylgihlutunum getur það fallið fullkomlega að stíl svefnherbergisins og sinnt báðum hlutverkum með prýði. Á kvöldin geturðu svo snúið veggljósinu þegar þú vilt lesa.

 

Skoðaðu veggljós

Skoðaðu veggljós

6. Eitt með öllu! 

Glæsilega GRÅFJÄLLET snyrtiborðið með spegli hefur allt sem þarf – stíl, notagildi og þægindi. Það passar auðveldlega í svefnherbergið – eða forstofuna – og kemur vel út hvar sem er. Þar sem það er með spegli þarftu ekki að setja spegil á vegginn sem kemur sér vel ef þú vilt helst ekki bora í vegg. Svo er það líka með skúffu ef þú vilt geyma snyrtivörurnar þar sem þær sjást ekki. 

Hvernig er þitt fullkomna snyrtiborð?

Hvað verður fyrir valinu – hefðbundið eða nútímalegt, með spegli eða án? Veldu það sem hentar þínum stíl og þörfum.

7. Gefðu forstofunni stærra hlutverk!

Með spegli (eða tveimur), góðri lýsingu og smá hirsluplássi er hægt að búa til snyrtiaðstöðu í nánast hvaða forstofu sem er!

 

Skoðaðu spegla

Skoðaðu spegla

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X