Með Nytillverkad endurvekjum við nokkrar af okkar eftirlætisvörum úr fortíðinni og færum þeim nútímalega yfirhalningu. Sumar þeirra hafa þó verið í vöruúrvalinu frá upphafi. Noboru Nakamura hannaði POÄNG hægindastólinn og KLIPPAN sófann fyrir rúmlega 40 árum en þeir eru í raun tímalausir. Nú snúa þeir aftur með lágu baki og í líflegum litum.
Lengi lifi klassík
KLIPPAN á sér litríka endurkomu úr vörulista IKEA frá árinu 1984 og POÄNG snýr aftur með lægra baki. Þeir eru hannaðir og uppfærðir af japanska hönnuðinum Noboru Nakamura. Þessar nýju vörur í Nytillverkad línunni ferðast með þig aftur til níunda áratugarins með áberandi litum, beinum línum og mínimalísku útliti.

Félagslyndari en áður
Mátulega þægilegur. Nýi POÄNG hægindastóllinn er með lágu baki og án höfðapúða og því tilvainn fyrir samverustundir enda hannaður fyrir spjall, rökræður og samræður. Grindurnar og púðarnir koma í rauðu, birkispóni/dröppuðu og svörtu og þú getur því valið þinn stíl.Sófi fyrir sem flesta
Áklæðin fyrir KLIPPAN sófa eru til skærrauð, blá og gul og færa KLIPPAN sófanum ferskt nýtt útlit. Áklæðin eru seld í textílpoka í stíl. Kipptu með þér nýjum sófa eða komdu færandi hendi í næsta innflutningspartí.”Japanski fáninn er afar einfaldur - aðeins einn hringur. Þannig nálgast ég mína hönnun”
Noboru Nakamura
Hönnuður