Hugmyndir fyrir unglingaherbergið

Unglingar eyða oft miklum tíma í svefnherberginu sem er í raun bæði svefnstaður og stofa. Í ofanálag þarf herbergið að búa yfir karakter og stíl. Það kann að hljóma flókið en þó er það einfaldara en þú heldur; lykillinn er að hafa nóg af sniðugum hirslum.

Notagildi + stíll

Líkt og vínylplöturnar á veggnum þá er þetta herbergi eins og uppáhaldshljómsveitin þín sem þú færð aldrei leið á. Sniðugar hirslur auðvelda þér að stilla upp því sem þér þykir fallegt þar sem allt annað er á sínum stað í skúffum, skápum eða hillum. Þegar þú ert með góðar hirslur þá er einnig einfaldara að breyta útlitinu eftir því sem áhugamálin þróast með því að breyta um litapallettu og smáhluti.

 


Sófarúm í fullri vinnu

Sófarúm er líklega snjallasta húsgagnið, bæði dag og nótt. Fyrir utan að vera bæði sófi og rúm býður það einnig upp á pláss fyrir hirslu eða gestarúm. VIHALS sófarúmið er með aukarúmi sem hægt er að draga fram hvenær sem þörf er á plássi fyrir næturgest. Geymdu aukasængur og -kodda í DIMPA hirslu til að hafa þau aðgengileg og verja fyrir ryki.

 

Skoðaðu sófarúm

Skoðaðu sófarúm

Allt til alls fyrir allt dótið

Árstíðabundin, tímabundin eða aukahirsla? Eða kannski hirslur fyrir allt sem þarf að hverfa á augabragði þegar þú tekur til í flýti?

Hirsla sem lagar sig að þér

Þegar kemur að sveigjanlegri, nytsamlegri og sniðugri hirslu jafnast ekkert á við samsetninguna af PAX fataskáp og KOMPLEMENT innvolsi. Vörulínurnar bjóða upp á ótal valmöguleika og því getur þú búið til hirslu sem hentar þínum þörfum. Prófaðu teikniforritið á vefnum okkar og fylgstu með hönnuðinum innra með þér brjótast fram. Annar kostur við PAX er að hann er nú samanbrjótanlegur sem gerir það mun auðveldara að taka skápinn með þegar þú flytur.

 

Skoðaðu PAX teikniforritið

Skoðaðu PAX teikniforritið

Hirsla sem færir hlutunum þínum sviðsljósið

Hirslur koma sér auðvitað vel til að geyma hluti en þar að auki skapa þær skipulag og koma reiðu á hlutina þína þannig að þú getur leyft skrautmunum og öðrum hlutum sem þér þykir vænt um að skína.

 

Skoðaðu MALM línuna

Skoðaðu MALM línuna

Skemmtu þér við skrifborðið

Skrifborð eru oftast tengd við vinnu eða nám en þau nýtast einnig fyrir alls konar verkefni; áhugamál, safngripi, leiki, vini eða hvað sem þú vilt eyða tíma þínum í. Ekki gleyma veggnum fyrir ofan skrifborðið, hann er oft vannýttur og getur auðveldlega verið eins og framlenging á skrifborðinu.

Skoðaðu öll skrifborð

Hugsaðu inn fyrir kassann

Ekki allar skreytingar eiga heima í ramma og þú vilt kannski ekki hafa þær á borðinu eða gluggakistunni – þá gæti verið sniðugt að koma upp hirslu (eða tveimur ... eða sex) eins og IVAR á vegginn og fá þannig fullkominn stað fyrir alla fallegu hlutina þína. Ef þú átt mikið af smáhlutum getur þú sett þá í kassa og geymt í hirslunni.

 

See all picture & photo frames

See all picture & photo frames

Listin að skreyta

Það er list í sjálfu sér að setja upp listaverk án þess að bora í vegg. ALFTA sjálflímandi snagar gera þér kleift að fegra veggina án þess að nota verkfæri. Snjöll lausn fyrir alla og sérstaklega þau sem vilja oft skipta út myndum og breyta til.

Flestar félagsmiðstöðvar eru aðeins nokkrir fermetrar

Unglingaherbergið er oft afar prívat þar sem allir þurfa að banka og fá leyfi til að koma inn. Á sama tíma verður það gjarnan að félagsmiðstöð þegar vinirnir koma yfir. Sveigjanleg húsgögn og staflanlegir stólar gera rýminu kleift að laga sig að tilefninu!

 


Byggðu á góðum grunni

Með stílhreinum grunni og góðum hirslum er auðvelt að laga herbergið að nýjum áhugamálum og stíl. Það þarf aðeins að skipta út rúmfötum eða velja nýjan lit á hliðarborðið til að umbreyta útlitinu. Það eina sem er óhagganlegt eru þægindin sem fylgja rúminu, enda er það kjarni herbergisins þar sem hægt er að slaka á, læra, spjalla, snarla – og sofa!

 


Hliðarborð með persónuleika


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X