Allt frá gróskumiklu borðhaldi til glæsilegra kvöldverða – hér eru hugmyndir um hvernig þú getur valið þér borðbúnað fyrir sumarveislurnar sem hentar þér og þínum persónuleika. Athugaðu að þetta er aðeins til gamans gert! Þú velur hvernig þitt matarævintýri lítur út og skreytir borðið í samræmi við það.
Stefnir þú á matarboð utandyra í sumar? Síðsumarkvöld kalla á dramatískt en fágað andrúmsloft. Skapaðu réttu stemninguna með ljósbláum FÄRGKLAR borðbúnaði og bættu við blöndu af kröftugum litum eins og brúnum bollum, grænum plöntum og litlum viðarskurðarbrettum. Hringborð skapa notalegt andrúmsloft og meiri nánd – af hverju ekki að bæta við dökkbláum teppum til að auka notalegheitin og dýpka samtölin?
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn