TERRSJÖ framhliðar

Möttu TERRSJÖ framhliðarnar búa yfir hlýlegum rauðbrúnum ljóma sem færir eldhúsinu dýpt og karakter. Það sem gerir þær einstakar er bylgjuð áferðin sem grípur ljósið og skapar hreyfingu. Framhliðarnar passa á METOD eldhús og eru gerðar til að þola daglega notkun – enda með 25 ára ábyrgð. Því gæði sem endast eiga ekki að vera lúxus heldur eðlilegur hlutur.

Þitt eldhús, þinn smekkur

TERRSJÖ framhliðarnar eru með hnúða í stíl og þú getur bætt við hliðarklæðningu með sléttu eða bylgjuðu yfirborði til að skapa fallegt heildarútlit. Framhliðarnar koma vel út með öðrum eldhúsframhliðum í úrvalinu okkar svo þú getur hannað eldhús algjörlega eftir þínu höfði. Auk þess erum við með klæðningu fyrir lýsingu sem gerir þér kleift að setja upp MITTLED LED lýsingu sem fellur inn í umhverfið. Þegar eldhúsið lítur svona vel út á það skilið að vera í sviðsljósinu.

Ábyrgðarskilmálar fyrir eldhús

Miklar kröfur eru gerðar til eldhússins í daglegu lífi. Til að tryggja að eldhúsinnréttingin þoli mikla þyngd, háan hita og daglega notkun eru eldhúsin okkar vandlega prófuð.

Við bjóðum þér 25 ára ábyrgð, sem nær yfir galla í efni og framleiðslu á METOD eldhússkápum.

Lestu nánar hér
ábyrgð

VOXTORP eikaráferð

Við hjálpum þér að hanna draumaeldhúsið

IKEA býður upp á vandaða þjónustu við að hanna eldhús sem er sérsniðið að þínum þörfum og rýminu sjálfu.


Færðu eldhúsinu rauðbrúnan ljóma

Skapaðu hlýlegt andrúmsloft með TERRSJÖ framhliðum (notaðu hnúðana sem fylgja með eða haltu þig við stílhreint útlit), hliðarklæðningu með sléttri eða bylgjaðri áferð og klæðningu fyrir lýsingu.


Skoðaðu TERRSJÖ hér
VOXTORP eikaráferð

Eldhúsframhliðar

Ertu að velta fyrir þér lit og áferð fyrir METOD eldhúsinnréttinguna þína? Úrval okkar af eldhúsframhliðum er afar fjölbreytt og því ætti að vera auðvelt að finna eitthvað í þínum stíl.

Skoðaðu allar eldhúsframhliðar fyrir METOD hér