Vel hönnuð húsgögn á verði sem flestir ráða við – það var sýn stofnanda IKEA, Ingvar Kamprad, fyrir litla fyrirtækið sitt, IKEA. Þegar fyrirtækið stækkaði og IKEA varð þekkt nafn um allan heim, komu ýmsar áskoranir upp en hvernig væri hægt að leysa þær þannig að við héldum áfram að þróa fyrirtækið og styðja fólkið á öllum stigum í virðiskeðju IKEA?
Efni, eins og algenga bleikingarefnið klór sem er notað til að framleiða pappír og PVC, voru mikið notuð í ýmsum atvinnugreinum. IKEA fékk á sig gagnrýni vegna efna og plasts sem var í sumum vörum. Við brugðumst hratt við til að fjarlægja þessa áhættu og settum á fót rannsóknarstofu til að prófa öryggi vara.
Russel Johnson, fyrsti umhverfisstjóri okkar, og nokkrir aðrir samstarfsfélagar hjá IKEA þróuðu saman fyrstu umhverfisstefnuna okkar. Hugmyndin var að læra að vinna með fyrirbyggjandi aðgerðir og takast á við áskoranir áður en þær yrðu að vandamálum.
Rétt eins og með vinnuna sem við hófum til að takast á við umhverfisáhrifin okkar, vildum við líka passa upp á velferð fólksins í virðiskeðju IKEA. Við fórum að gera okkur grein fyrir þeirri flóknu áskorun sem felst í barnavinnu og lögðum mikla vinnu til að tryggja að vörurnar okkar væru framleiddar við viðunandi aðstæður.
Árið 2000 kynntum við IWAY – siðareglurnar okkar fyrir birgja. IWAY byggir á samningum Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og setur skýrt fram hvers við væntum af birgjunum okkar og hver afstaða okkar er varðandi réttindi barna, vinnuaðbúnað, skógrækt og umhverfisvernd.
Árið 2005 lagði IWAY áherslu á að leggja félagslega og umhverfislega staðla fyrir flutningsaðila IKEA. Á árunum 2005–2008 tókum við á losun fráveituvatns hjá textílbirgjum okkar í Suður-Asíu. Árið 2012 var IWAY útvíkkað til að ná til óbeinna efna og þjónustu, þ.e. sem notað er til rekstar en ekki beinnar framleiðslu á vörum. Frá 2012–2015 lögðum við áherslu á að bæta vinnutíma allra starfsmanna hjá birgjum okkar í Kína. Áratugur stútfullur af framförum!
Í september 2020 kynntum við 6. útgáfuna af IWAY, sem færði okkur kerfisuppfærslu með betri vinnuaðferðum og nýjum viðfangsefnum eins og líffræðilegri fjölbreytni og verndun náttúruauðlinda, dýravelferð, meiri áherslu á starfsþróun og stuðning við birgja til að ná sem bestum árangri.
Heimur stafrænnar verkvangsvinnu (e. Digital platform work) er alltaf að breytast, svo árið 2021 tókum við á móti þessu nýja vinnuformi í virðiskeðju IKEA með því að kynna IWAY kaflann um 'Stafræna verkvangsvinnu'. Þar eru skilgreindar lágmarks félags- og vinnuaðstæður fyrir alla stafræna verkvangsstarfsmenn sem vinna þjónustu fyrir, eða fyrir hönd, IKEA.
Skógræktarkröfur hafa verið í IWAY frá fyrstu útgáfunni árið 2000. Við endurskoðuðum þessar kröfur árið 2023 til að fylgja skógaráætlun IKEA og nýrri löggjöf.
Það er alltaf eitthvað meira sem þarf að gera! Árið 2024 héldum við áfram að styrkja ábyrgu innkaupin okkar í allri virðiskeðju IKEA með nýjum IWAY kröfum sem taka á réttindum sjófarenda, dýravelferð, auk félagslegra og umhverfislegra þátta í landbúnaði.
Hjá IKEA trúum við því að það sem er gott fyrir einstaklinga, samfélagið og jörðina sé líka gott fyrir fyrirtækið. IWAY hjálpar okkur að byggja sterkan grunn fyrir virðiskeðju IKEA og stöðuga þróun fyrir bæði okkur og birgjana okkar – framlag sem við ætlum að halda áfram að bæta og þróa á hverju þrepi virðiskeðjunnar. Þetta þýðir að við erum að teygja IWAY lengra niður eftir virðiskeðju IKEA, til sérleyfishafa okkar, undirbirgja beinu birgjanna okkar og alla leið að uppruna hráefnanna. Við erum staðráðin í þessari vegferð og vinnum að henni saman með samstarfsaðilum okkar í aðfangakeðjunni, IKEA teymunum og öðrum utanaðkomandi hagsmunaaðilum.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn