IWAY – siðareglur birgja IKEA

IWAY er leið IKEA til að versla vörur, þjónustu, efni og íhluti á ábyrgan hátt. Kerfið setur skýrar væntingar og verklag um það hvernig við nálgumst umhverfis-, félags- og kjaramálum auk dýravelferðar. IWAY er skylda fyrir alla stærri birgja og þjónustuaðila sem vinna með IKEA.

Við viljum vera jákvætt afl fyrir einstaklinga, samfélög og jörðina með því að finna jafnvægi milli hagvaxtar, jákvæðra samfélagslegra áhrifa, umhverfisverndar og -endurnýjunar og bjóða upp á mannsæmandi og þýðingarmikil störf.

  
 
 
    
Í gegnum IWAY höfum við áhrif á fjögur meginsvið með því að:
  • vinna með birgjum til að stuðla að ábyrgu innkaupaferli
  • tryggja mannsæmandi og þýðingarmikla vinnu fyrir starfsfólk
  • virða réttindi barna
  • bæta velferð dýra í virðiskeðju IKEA

IWAY er mikilvægur þáttur í birgjaumsjónarkerfinu okkar. Það inniheldur IWAY staðallinn, sem eru siðareglur fyrir birgja IKEA, og IWAY rammann sem eru sameiginlegar vinnuaðferðir fyrir allar einingar IKEA, birgja og þjónustuaðila.
IWAY staðallinn byggir á 10 grunnreglum IWAY sem endurspegla metnað okkar og skýra væntingarnar okkar til viðskiptafélaga vel. Grunnreglurnar 10 eru svo studdar af IWAY kröfunum í IWAY staðlinum.
IWAY kröfurnar koma í fjórum þrepum: MUST, BASIC, Advanced og Excellent. IWAY MUST og IWAY BASIC eru lágmarkskröfur sem allir birgjar og þjónustuaðilar sem vinna með IKEA verða að uppfylla. Eins og við hjá IKEA stefna samstarfsaðilar okkar alltaf að því að gera enn betur og geta þannig náð IWAY Advanced og IWAY Excellent þrepunum.
IWAY staðallinn samanstendur af:
IWAY General Section – almennur kafli sem á við um alla birgja IKEA.
IWAY Accommodatio Section – sértækur kafli sem inniheldur kröfur til birgja sem sjá starfsfólki sínu fyrir húsnæði.
IWAY Animal Welfare Section – sértækur kafli sem á við um dýrameðhöndlun og dýraafurðir í virðiskeðju IKEA.
IWAY Digital Platform Work Section – sértækur kafli sem inniheldur viðbótarkröfur við almenna kaflann IWAY General Section, sérsniðnar að stafrænum vefvöngum (eins og Hoobla eða Giggó). Þessar kröfur tryggja réttindi þeirra sem vinna á vefvöngum og veita þjónustu fyrir eða fyrir hönd IKEA.
IWAY Forest Materials Section – sértækur kafli sem inniheldur viðbótarkröfur við almenna kaflann IWAY General Section, sem eru sérniðnar fyrir timburafurðir. Þessi hluti á við um birgja sem nota óunnin og endurunnin skógarefni fyrir IKEA.
IWAY Land Transport Secton – sértækur kafli sem inniheldur viðbótarkröfur við almenna kaflann IWAY General Section, sem eru sérsniðnar að landflutningum.
IWAY Ocean Transport Section – sértækur kafli sem inniheldur viðbótarkröfur við almenna kaflann IWAY General Section, sem eru sérsniðnar að sjóflutningum.
 
   
 
 
 

Hvernig við vinnum með IWAY

Að þróast í samvinnu við birgja og þjónustuaðila IKEA er kjarninn í nálgun IWAY. Saman stefnum við að því að ná sömu markmiðum – að tryggja ábyrg innkaup og stuðla að sjálfbærari virðiskeðju IKEA.  

Að innleiða IWAY

IWAY kerfið er áreiðanlegt og öflugt, með skýrum ferlum sem gera það að lykilhluta í rekstri IKEA. IWAY kröfurnar leggja áherslu árangurinn sem næst þegar þær eru innleiddar, frekar en hvernig kröfurnar eru innleiddar. Birgjarnir okkar stjórna innleiðingunni á IWAY kröfunum, laga þær að sínum aðstæðum og aðlaga að daglegum rekstri. Auðvitað geta vinnubrögðin verið mismunandi eftir atvinnugreinum, svæðum og viðskiptaumhverfi, en niðurstaðan af því að vinna með IWAY er alltaf sú sama: jákvæð samfélagsleg áhrif á einstaklinga, samfélög og jörðina í allri virðiskeðju IKEA.  

Stuðningur og samstarf teymum IKEA

Víðsvegar um heim eru hæf og reynd teymi sem styðja, hvetja og vinna með birgjunum okkar. Eitt af helstu markmiðum okkar er að þróa og viðhalda hæfni IKEA sérfræðinganna í bæði IWAY kerfinu og almennri sjálfbærni til lengri tíma.

Eftirlit og eftirfylgni

IWAY er mikilvægur þáttur í áreiðanleikakönnunarferli IKEA (e. due diligence process) til að greina, fyrirbyggja, lágmarka og skýra áhrif af rekstri IKEA í virðiskeðjunni. Með áhættumiðaðri nálgun (e. risk based approach) geta IKEA teymin forgangsraðað verkefnum út frá áhættum og tækifærum, og einbeitt sér að ákjósanlegum niðurstöðum og áhrifum í virðiskeðjunni.

IWAY kerfið er með ferla til að sannreyna og fylgja eftir samræmi við IWAY kröfurnar hjá birgjum. IWAY eftirlitið styður við innleiðinguna og þróunina. Hún er framkvæmd af þjálfuðum IKEA eftirlitsaðilum eða óháðum endurskoðendum frá þriðja aðila eftir þörfum, og getur bæði verið tilkynnt eða ótilkynnt.

Jafningjafræðsla

Við leggjum áherslu á að styrkja birgja og þjónustuaðila IKEA til að taka ábyrgð á því innleiðingu IWAY í sínum rekstri og sem hluta af virðiskeðju IKEA, allt miðað við þeirra eigin viðskiptalegu og svæðisbundnu aðstæður. IKEA teymið er alltaf til staðar til að styðja við birgjana okkar við innleiðingu IWAY, til dæmis með þjálfun og fræðslu.

 
 
 

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X