BÄSINGEN
Trappa með handriði,
kolgrátt

4.950,-

4950

Magn: - +
BÄSINGEN
BÄSINGEN

BÄSINGEN

4.950,-
Vefverslun: Til á lager
BÄSINGEN vörulínan inniheldur stílhreinar vörur í kolgráu sem eru hannaðar til að auðvelda ýmis dagleg verk. Trappan er með handriði og er afar gagnleg þegar stigið er upp úr baðkari eða til að ná í efstu skápana.
BÄSINGEN trappa með handriði

Örlítill stuðningur getur gert gæfumuninn

Að stíga upp úr baðkari, ná upp í efstu hillu eða sturta sig í rólegheitum – BÄSINGEN vörurnar eru þér til halds og trausts. Þær eru hannaðar fyrir baðherbergið en margar þeirra getur þú notað á fleiri stöðum á heimilinu.

Þarfir okkar eru síbreytilegar og geta einnig breyst snögglega. „Það geta allir lent í því að fara aðeins of langt í einhverri hreyfingu og vakna með verki. Þá getur verið gott að fá smá stuðning og aðstoð við ýmsar aðgerðir heima við – svo sem að fara í sturtu,“ segir Sarah Fager, hönnuður.

Gott grip

Sarah hóf verkefnið á því að rannsaka þarfir og daglegt líf fólks sem er ekki með fullkomna hreyfigetu. „Það getur verið gott að halda sér í. Með það í huga hönnuðum við handklæðaslána og sturtuhilluna. Tröppurnar og sturtustóllinn standa stöðug og með góðu haldi.“ Sturtustóllinn er líka þægileg tilbreyting. Ímyndaðu þér að sitja í þægilegum stól og njóta heitrar sturtu.

Fallegur húsbúnaður sem auðveldar dagleg verk

Vörurnar eiga sér rætur í skandinavískri hönnunarhefð, þær eru mínimalískar og taka lítið pláss. “Þær eiga að passa inn á hvaða heimili sem er, sama hvaða stíll þar er. Við viljum að þær falli vel inn í heimilið.“ Sarah vonar að vörurnar bæti daglegt líf sem flestra. „Þetta verkefni var krefjandi því það snerist um að mæta þörfum sem ég hef ekki þurft að spá í áður. En það gerði verkefnið líka mjög áhugavert. Ég vona að BÄSINGEN vörurnar geti verið sem lengst inni á heimilum. Þær geta verið stuðningur af og til, þótt þú notir þær ekki alltaf.“

Sjá meira Sjá minna

Vörur sem þú skoðaðir síðast