Á bakhlið spegilsins er öryggisfilma sem dregur úr slysahættu ef hann brotnar.
Settu spegilinn upp og komdu honum fyrir eins og þér hentar best – lóðrétt eða lárétt.
Þú getur stillt litarhita- og birtustig sem þú vilt með hnöppunum. Stillingarnar þínar vistast og eru eins næst þegar þú kveikir á speglinum.
Virkjaðu móðuvörnina rétt áður en þú ferð í sturtu – og spegillinn verður móðulaus um leið og þú kemur úr sturtunni. Vörnin slekkur sjálfkrafa á sér eftir klukkustund til að spara orku.
Hrein og móðulaus spegilmynd heilsar þér – jafnvel eftir langa og heita sturtu.