Stillanlegir fætur til að auka stöðugleika, jafnvel á ójöfnu gólfi.
Komdu á skipulagi að innan með ALTARLIDEN innvolsi og fullkomnaðu að utan með snjöllum lausnum úr HÄNGIG línunni.
Hurðir og lamir eru innifaldar.
Ónotað rými breytist í viðbótargeymslu þegar þú festir ALTARLIDEN snaga í forboruð göt á hliðarplötum skápsins.
Það er auðvelt að tengja saman nokkra LASTARE skápa með skrúfunum sem fylgja. Það eina sem þú þarft er skrúfjárn.
Mínimalísk hönnunin gerir það að verkum að skáparnir falla vel að veggjunum og gefa litlum rýmum stílhreint og létt yfirbragð.
Með LASTARE teikniforritinu er auðvelt að búa til lausn sem er sérsniðin að þér og þínum þörfum.