Í lokinu er pláss fyrir nef barnsins svo þægilegt sé að drekka án þess að þurfa að halla höfðinu langt aftur.
Stútur málsins og stóru handföngin tvö auðvelda barninu að halda á málinu, stjórna því og drekka sjálft. Og málið stendur stöðugt á litlu froskalöppunum.
Það er auðvelt að laga smekkinn að hálsi barnsins og hann er með stóran vasa sem grípur megnið af því sem ekki ratar upp í munn.
Stærð skeiðarinnar er löguð að litlum höndum og munni – hentar því vel þegar verið er að bragða á nýjum matvælum.