Saga
Kannast þú við STRANDMON hægindastólinn? Þetta er barnaútgáfan, byggður á stærð barna, hvernig þau sitja – og hvernig þau sitja ekki þegar hægindastóllinn breytist skyndilega í eyðieyju eða eldflaug. Vegna þess að þegar við ræddum við sérfræðinga komumst við að því að það skiptir meira máli að hafa sinn eigin, öruggan og þægilegan hægindastól í réttri stærð en við höldum.
Ímyndaðu þér að þú sért að keyra bíl, vinna á skrifstofunni, elda mat … „Að líkja eftir fullorðnum er leið fyrir börn til að endurskapa það sem þau hafa upplifað svo þau geti skilið heiminn í kringum sig og hvernig þau passa í hann,“ segir Barbie Clarke, barnasálfræðingur sem hefur rannsakað börn og þroska þeirra. Með þessum upplýsingum fórum við að velta fyrir okkur hvaða hægindastóll hentaði vel fyrir börn ef stærðin væri aðlöguð.
Lagað að smáum kroppum
Við völdum STRANDMON hægindastólinn. „Hann er tímalaust og notalegur og hönnunin er heillandi, eins og að sitja í verndandi faðmi,“ útskýrir Nicolas Cortolezzi sem var hluti af hönnunarteyminu. En þetta snýst ekki bara um að minnka stærðina. „Börn eru ekki í sömu hlutföllum og fullorðnir og þau sitja ekki eins og við. Þau eru á stöðugri hreyfingu og vilja setja fæturna út um allt og þess vegna ákváðum við að hafa púðana ekki lausa.“ Teymið hugsaði mikið um stöðugleika til að gera hægindastólinn öruggan. Meðal annars eru fæturnir staðsettir annars staðar til að aðlaga þyngdarpunktinn að því hvernig börn nota stóla. Svo er það áklæðið – við getum ímyndað okkur hvað það þarf að þola ef hægindastóllinn er stundum notaður sem eyðieyja eða hæsta fjall heims.
Að leyfa börnunum að vera með og tilheyra
Þegar allt kemur til alls snýst þetta um að börn séu viðurkennd og litið sé á þau sem þær litlu manneskjurnar sem þau eru. „Ef börnum er leyft að sitja í stól í sinni stærð finnst þeim þau taka meiri þátt í umhverfinu,“ segir Barbie. „Þetta er mjög mikilvægt fyrir þau.“