SANDLÖPARE
Mjúkdýr,
8 cm, jarðköttur/lítið drappað
Staðsetning í verslun Barna IKEA

295,-

295

Magn: - +
SANDLÖPARE
SANDLÖPARE

SANDLÖPARE

295,-
Vefverslun: Til á lager
Hver vill ekki eiga lítinn vin sem eltir mann út um allt? Það er nákvæmlega það sem þessi litli jarðköttur gerir – alltaf til í nýja leiki, prakkarastrik og ævintýri með barninu.

Form/Hönnunarferli

Samstarf við Nordens Ark

IKEA er í samstarfi við Nordens Ark, sjálfseignarstofnun sem einbeitir sér að náttúruvernd, ræktun og frelsun dýra, rannsóknir og fræðslu. Samstarfið hefur fært okkur dýpri innsýn í þær verndunaraðgerðir sem þarf til að varðveita dýralíf. Við styðjum við Nordens Ark með því að fræða bæði börn og fullorðna um dýr í útrýmingarhættu. Með dýrmætri þekkingu þeirra höldum við áfram að þróa nýjar vörur sem vekja upp forvitni um jörðina, náttúruna og öll þau undursamlegu dýr sem hér búa.

Hugleiðingar hönnuða

Hönnuður: Anna Lagerström

„Með SANDLÖPARE vörulínunni vildi ég skapa spennandi og litríkan heim þar sem börn geta notað ímyndunaraflið sitt og orkuna til að semja sögur og búa til leiki. Ýmis smáatriði eru vandlega falin í vörunum og það er alltaf eitthvað nýtt til að uppgötva og leika sér með. Börn eru ekki aðeins áhorfendur – þau eru könnuðir og hetjur í ævintýraleit.“

Gæði

Já, þau eru sæt – en eru þau örugg? Algjörlega!

Þú getur verið viss um að allar barnavörurnar okkar standast ströngustu kröfur þegar það kemur að heilsu og öryggi. Við prófum leikföngin okkar vandlega (við erum mikið harðhentari en tveggja ára börn). Bara svo að þú getir haft minni áhyggjur og leikið þér meira.


Bæta við vörum

Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast