5.490,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
GREJSIMOJS
Hvað gerist þegar stór hópur hönnuða kemur saman og kafar ofan í heim leikgleðinnar? Þeir hanna vörulínu með dásamlegum loðnum stólaáklæðum, hátalaramúsum, tanngóðri hirslu og margt fleira – skapað til að hvetja til leiks, alla daga og alls staðar á heimilinu.
„Sífellt fleiri foreldrar gera sér grein fyrir mikilvægi leiks fyrir hamingju og vellíðan barna sinna – og vilja leika meira við þau. GREJSIMOJS línan byggir alfarið á þessari innsýn“, segir Karin Blindh Pedersen, þróunarstjóri.
Þrátt fyrir að vera byggt á rannsóknum um leik þá var hönnunarferlið jafn skemmtilegt og vörurnar sjálfar. Hver hönnuður var beðinn um að byrja þar sem hann fann fyrir mestri leikgleði, í þeirri hversdagslegu iðju þar sem hann gleymir sér í augnablikinu og einfaldlega skemmtir sér – og hanna þannig hluti sem kalla fram bros. „Fyrir mér er leikgleði lífssýn sem ýtir undir sköpunargleði og fær mig til að trúa því að allt sé mögulegt. Ég mun aldrei leyfa barninu innra með mér að vaxa úr grasi.“ segir Marta Krupinska, einn af hönnuðunum á bak við línuna.
Vörurnar í GREJSIMOJS línunni eru allt frá því að vera litríkar og áberandi yfir í að vera stílhreinar og hlutlausar. Þær sameina skemmtun og notagildi og auðvelda þér að koma leiknum af stað, hvort sem þú ferð alla leið eða vilt frekar fela leikgleðina fyrir allra augum. Þær hvetja til leiks um allt heimilið og veita börnum og fullorðnum innblástur til að gefa leikgleðinni lausan tauminn. Ert þú 3 ára, 116 ára eða einhvers staðar þar á milli? Þá er GREJSIMOJS fyrir þig!
„GREJSIMOJS gíraffaljósið kviknaði út frá hugmyndinni um lampa með hreyfanlegu höfði. Til að uppfylla allar ströngu öryggiskröfurnar fyrir barnavörur þurfti ég að endurhanna hann nokkrum sinnum, en hver ný áskorun opnaði dyr að betri lausnum. Persónuleiki lampans þróaðist smám saman og útkoman varð bæði skemmtilegri og sniðugri. Fyrir mér er hann meira en bara lampi. Þetta er vinur sem heldur þér félagsskap og vakir yfir þér á meðan þú sefur.“
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Með því að banka á andlit gíraffans kviknar á lampanum. Auðvelt, ekki satt?
Það er hægt að snúa höfði gíraffans örlítið til hægri eða vinstri.
Með GREJSIMOJS viljum við hvetja til meiri leiks og samveru. Vörurnar kalla fram leikgleði hjá fólki á öllum aldri og um allt heimilið.
Vörunúmer 006.020.39
1 pakkning(ar) alls
Þurrkaðu með hreinum klút.
Fyrir 3 ára og eldri.
Varan er CE-merkt.
Rafhlöður eru seldar sér. Notaðu tvær AA rafhlöður.
IKEA mælir með LADDA hleðslurafhlöðum.
Innbyggð LED lýsing.
Veitir mjúka glampalausa birtu í myrkrinu sem gerir það að verkum að endingartími rafhlaðanna er mikið lengri.
Líftími ljósgjafans er um 25.000 klst. Það samsvarar tuttugu árum ef ljósið er notað þrjár klukkustundir á dag.
Innbyggður tímastillir slekkur á ljósinu eftir fimmtán mínútur.
Lampinn á að standa á gólfinu en ekki uppi á bekk, hillu eða öðrum háum stað.
| Lengd: | 59 cm |
| Breidd: | 40 cm |
| Hæð: | 14 cm |
| Heildarþyngd: | 2,08 kg |
| Nettóþyngd: | 1,59 kg |
| Rúmmál hvers pakka: | 32,7 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 006.020.39
| Vörunúmer | 006.020.39 |
Vörunúmer 006.020.39
| Hæð: | 75 cm |
| Orkunotkun: | 0,1 W |
| Breidd: | 38 cm |
| Vörunúmer: | 006.020.39 |
| Pakkningar: | 1 |
| Lengd: | 59 cm |
| Breidd: | 40 cm |
| Hæð: | 14 cm |
| Heildarþyngd: | 2,08 kg |
| Nettóþyngd: | 1,59 kg |
| Rúmmál hvers pakka: | 32,7 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls