6.950,-
6950
Leiktu þér með heimilið
Hvað gerist þegar stór hópur hönnuða kemur saman og kafar ofan í heim leikgleðinnar? Þeir hanna vörulínu með dásamlegum loðnum stólaáklæðum, hátalaramúsum, tanngóðri hirslu og margt fleira – skapað til að hvetja til leiks, alla daga og alls staðar á heimilinu.
„Sífellt fleiri foreldrar gera sér grein fyrir mikilvægi leiks fyrir hamingju og vellíðan barna sinna – og vilja leika meira við þau. GREJSIMOJS línan byggir alfarið á þessari innsýn“, segir Karin Blindh Pedersen, þróunarstjóri.
Markmið: Kalla fram bros
Þrátt fyrir að vera byggt á rannsóknum um leik þá var hönnunarferlið jafn skemmtilegt og vörurnar sjálfar. Hver hönnuður var beðinn um að byrja þar sem hann fann fyrir mestri leikgleði, í þeirri hversdagslegu iðju þar sem hann gleymir sér í augnablikinu og einfaldlega skemmtir sér – og hanna þannig hluti sem kalla fram bros. „Fyrir mér er leikgleði lífssýn sem ýtir undir sköpunargleði og fær mig til að trúa því að allt sé mögulegt. Ég mun aldrei leyfa barninu innra með mér að vaxa úr grasi.“ segir Marta Krupinska, einn af hönnuðunum á bak við línuna.
3 ára, 116 ára eða einhvers staðar þar á milli? Fullkomið!
Vörurnar í GREJSIMOJS línunni eru allt frá því að vera litríkar og áberandi yfir í að vera stílhreinar og hlutlausar. Þær sameina skemmtun og notagildi og auðvelda þér að koma leiknum af stað, hvort sem þú ferð alla leið eða vilt frekar fela leikgleðina fyrir allra augum. Þær hvetja til leiks um allt heimilið og veita börnum og fullorðnum innblástur til að gefa leikgleðinni lausan tauminn. Ert þú 3 ára, 116 ára eða einhvers staðar þar á milli? Þá er GREJSIMOJS fyrir þig!
Hugleiðingar hönnuða
Ellen Hallström hönnuður
Einu sinni þegar ég var lítil kom mamma heim með stóran, gylltan túkan. En við höfðum hann bara til skrauts, því á honum var sprunga sem var hægt að meiða sig á. Þannig að þegar ég fékk tækifæri til að hanna eitthvað fyrir GREJSIMOJS línuna var ruggu-fugl augljós kostur! Hann er eins og höggmynd þegar hann er ekki í notkun en lifnar við þegar börnin sjá hann og byrja að rugga sér. Hann gefur ímyndunaraflinu lausan tauminn og hjálpar börnum að þjálfa jafnvægi og hreyfifærni.