Að kubba snýst um stærð, lögun þyngdaraflið og jafnvægi – og eftir því sem barnið stækkar lærir það meira og meira og leikurinn og byggingarnar sem verða til úr þessum endingargóðu viðarkubbum verða flóknari.
Hús eða bílskúr fyrir LILLABO lestina? Kubbar hjálpa barninu að þróa með sér fínhreyfingar, rökræna hugsun og ímyndunarafl.
Kubbarnir eru ætlaðir fyrir börn frá 18 mánaða aldri. Þeir eru léttir, 3 cm breiðir – fyrir gott grip – og með rúnnuðum hornum. Þeir hafa einnig verið vandlega prófaðir svo þú getir treyst því að þeir séu öruggir.
Hluti af UNDERHÅLLA línunni – fræðandi og klassísk leikföng sem hjálpa barninu að læra á klukku, telja, læra stafina og skilja tengslin á milli lögunar og jafnvægis.