Sniðugur búnaður sem auðveldar þér að fella og setja borðið saman, með tveimur plötum þannig að þú ræður stærðinni. Sveigjanleg lausn sem hentar vel í litlu rými.
Borðplata með melamínþynnu er bæði hentug og auðveld í þrifum með rökum klút.
Duftlökkuð og sterk hágæðastálgrind veitir stöðugan grunn og er varin fyrir ryði. Því endist borðið um ókomin ár.
Þú getur lengt borðið eftir þörfum.
Stílhreint og minímalískt yfirbragð með nútímalegu ívafi sem kemur vel út á flestum heimilum.
Hirslan með stillanlegu hillunni hentar vel til að geyma borðbúnað, skriffæri eða skrautmuni. Þangað komast allt að fjórir fellistólar, sniðugt ef þú vilt vera með aukasæti.
Með því að nota sterkt hágæðastál í vöruna hámörkum við notkun auðlinda með því að nota minna af efni samanborið við ef við hefðum notað venjulegt stál, ásamt því að auka endingu og styrk.