TUNSTA borðið er nútímalegt, fjölhæft og stílhreint. Það er með svörtum stálfótum og svartri þynnu á yfirborðinu.
Þú getur notað það sem sófaborð eða hliðarborð sem fellur vel að einingasófa.
Borðið er létt og í þægilegri stærð og því er auðvelt að lyfta því upp og færa til ef þú vilt.
Stöðugir stálfæturnir og yfirborð með plastþynnu úr endurunnu plasti sem rispast ekki. Einfalt í umhirðu og endist árum saman.
Borðið er hannað til notkunar í atvinnuskyni og uppfyllir því kröfur um öryggi, endingu og stöðugleika. Hentug lausn á skrifstofunni eða heima. Ferhyrnd lögunin og slétt yfirborðið passa vel inn í rými í nútímalegum stíl.
Opin hilla undir borðplötunni er góð hirsla sem hjálpar þér að halda umhverfinu snyrtilegu. Ef þú vilt stílhreinna útlit getur þú haft fallega hirslukassa í hillunni.