Nýtt lægra verð
NISSAFORS
Hjólavagn,
50.5x30x83 cm, hvítt
Staðsetning í verslun
Gangur 57
Bil J
Fyrra verð: 5.450,-
4.950,-
Magn: - +
NISSAFORS
NISSAFORS

NISSAFORS

5.450,-
4.950,-
Vefverslun: Til á lager
Vagninn er meðfærilegur, rennur mjúklega og passar í þröng rými. Stílhrein málmgrindin og opnu hillurnar gera hann tilvalinn fyrir eldhúsáhöld, blöð og penna eða aðra hversdagslega nauðsynjamuni.

Eiginleikar

Þinn tryggi þjónn

NISSAFORS hjólavagninn sparar pláss, smýgur inn í minnstu rými og er tilbúinn að rúlla hvert sem þú þarft á honum að halda. Hvort sem þú notar hann til að geyma olíur og krydd í eldhúsinu, skrifstofuvörur á heimaskrifstofunni eða trefla og hanska í forstofunni, þá kemst hann fyrir nánast hvar sem er. NISSAFORS hjólavagninn er nettur, sterkbyggður og fáanlegur í litum sem auðvelt er að falla fyrir. Hann er hannaður og prófaður með stöðugleika, endingu og öryggi í huga svo þú getir reitt þig á hann um ókomin ár.

Hugleiðingar hönnuða

Ebba Strandmark, hönnuður

„NISSAFORS hjólavagninn er lítil hetja sem passar hvar sem er. Hann er innblásinn af borgarlífsstíl þar sem pláss er oft takmarkað og það þarf stöðugt að endurraða hlutunum til að skapa meira pláss. Stílhrein málmgrind og opnar hillur gera hann fjölhæfan og það er auðvelt að koma honum fyrir – hvort sem það er við skrifborðið, í eldhúsinu eða á baðherberginu. Einfaldur og snjall – og algjörlega ómissandi.“

Efni

Hvað er stál?

Stál hefur þá einstaka eiginleika að þó að það hafi verið teygt og mótað þá heldur það styrk sínum. Það er notað til að styrkja allt frá skýjakljúfum og bílum að rúmgrindum og útihúsgögnum. Stáliðnaðurinn hefur verið að stefna í átt að orkunýtnari framleiðslu og betri gæðum. Stál tapar ekki eiginleikum þegar það er endurunnið og í dag er það eitt af þeim efnum sem mest er endurunnið í heiminum.


Aðrir keyptu líka

Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast