Þú getur deyft lýsinguna þráðlaust og aðlagað eftir þörfum.
Festingin gerir þér kleift að renna ljósinu fram og til baka. Þú getur auðveldlega fest það með skrúfum – eða með tvöföldu límbandi á gler- eða málmfleti.
Sniðug og nett hönnunin passar með flestum stílum og hentar vel ef plássið er lítið á milli hillueiningarinnar eða skápsins og loftsins.
Þú getur auðveldlega beint ljósinu þangað sem þú vilt því hægt er að beygja arminn í 180° og halla lampahausnum í 90°.