Stillanlegir fætur til að auka stöðugleika, jafnvel á ójöfnu gólfi.
Ef þig langar til að skipuleggja innihaldið þá getur þú bætt við KOMPLEMENT innvolsi.
Hentar vel þar sem plássið er lítið.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Tvær mismunandi festingar fylgja með svo þú getir fest skápinn tryggilega á vegg með eða án gólflista.
Sterkbyggð hönnun og því getur þú tekið skápinn í sundur og fært hann til eða flutt hann með þér.
Fylgdu einföldu leiðbeiningunum til að taka í sundur PAX fataskápinn á öruggan hátt og tryggja þannig góða endingu.
Samanbrjótanleg hönnunin gerir þér kleift að setja skápinn upp á staðnum þar sem hann á að vera og hann hentar því einstaklega vel þar sem lágt er til lofts. Einnig þarf ekki að lyfta þungu húsgagninu upp að veggnum eftir samsetningu.