5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Þægilegar útdraganlegar brautir auðvelda þér að setja í ofninn og taka úr honum á öruggan hátt.
Blásturinn dreifir hitanum fljótt og vel um allan ofninn og gerir þér kleift að elda og baka marga rétti í einu án þess að það hafi áhrif á bragð.
Auðvelt að velja réttar stillingar með snertiskjá og tökkum.
Auðvelt að setja upp í þægilega vinnuhæð, í grunnskáp eða háan skáp.
Brauð- og pizzustilling gera brauðmetið fallega brúnt að utan og pizzubotninn stökkan.
Undir- og yfirhiti til að fá stökka áferð á ofnrétti og hægelda pottrétti.
Ofnhurð með barnalæsingu bætir öryggi í eldhúsinu.
Einstaklega rúmgóður ofn með pláss fyrir fimm grindur sem tryggir að nægt pláss sé fyrir það sem þú vilt elda.
Þú getur auðveldlega valið bestu grillstillinguna til að elda þunnar kjötsneiðar og grænmeti eða til að brúna gratín og steikur.
Gufan gerir brauðið sem þú bakar gullinbrúnt og stökkt að utan en mjúkt að innan, og maturinn sem þú eldar verður safaríkari.