Notaðu smærri kassa til að koma skipulagi á innihald skúffa þannig að jafnvel minnstu hlutir finnast auðveldlega. Við bjóðum upp á breitt úrval af kössum í ólíkum stærðum og gerðum.
Úr gegnheilum við sem hægt er að pússa, olíubera, lakka, bæsa eða mála. Kommóðan er auðveld í umhirðu og hönnuð með endingu í huga. Það er auðvelt að fríska upp á hana og lengja þannig endingartíma hennar.
Kommóðan er grunn og hentar því vel þar sem plássið er lítið. Notaðu með RAGGBERG bekk með skóhirslu sem er í sömu dýpt og stíl og passar því fullkomlega með.