Með UV-vörn, sem lengir endingartímann.
Lokið er með lömum með ljúfloku og því eru minni líkur á að þú klemmir þig þegar þú lokar því.
Fatan er með rúnnuðum hornum fyrir auðveldari þrif.
Hringur á innanverðri ruslafötunni felur og heldur ruslapokanum á sínum stað.
Það er auðvelt að færa ruslafötuna til því handfang er á bakhliðinni.
Ruslafatan hentar líka til að flokka pappír, plast, flöskur, blöð eða annað rusl sem tekur mikið pláss.
Góð staðsetning fyrir flokkun er í eldhúsinu, nálægt vaskinum til að koma í veg fyrir að það sullist niður. Þar myndast einnig mesta sorpið.
KNÖCKLA ruslafata með fótstigi fæst einnig smærri með tveimur ílátum – hentar vel fyrir þá sem vilja flokka án þess að það taki of mikið pláss eða þurfa að tæma ruslið of oft.