Þú nærð upp suðu fyrr ef þú hefur lokið á, þannig sparar þú tíma, orku og peninga ásamt því að minnka áhrif þín á umhverfið.
Hentar öllum gerðum af helluborðum, þ.m.t. spanhelluborðum.
Úr ryðfríu stáli, sem er endingargott og auðvelt að þrífa.
Gufuventill minnkar þrýstinginn og því sýður ekki auðveldlega upp úr.
Glerlokið gerir þér kleift að fylgjast með innihaldinu meðan á eldun stendur.
Í botninum er lag af áli á milli tveggja laga af ryðfríu stáli. Gefur jafnan hita og minnkar líkurnar á að maturinn brenni eða festist við botninn.