1.290,-
1290
Pottastandurinn er segulmagnaður og hentar því vel undir potta sem hægt er að nota á spanhellur.
Þessi pottastandur er með segli. Þú getur sett hann undir alla stálpotta og þá loðir hann við þegar þú þarft að færa til.
Eiginleikar
Fylgir pottinum þegar þú færir hann
IKEA 365+ GUNSTIG er með innbyggðum segli þannig að þegar þú færir pottinn, fylgir pottastandurinn með. Hann festist við öll eldunarílát með segulmögnuðum botni (sem sagt allt sem nota má á spanhellum). Hann er úr silíkoni og á því ekki í neinum vandræðum með að þola heitar pönnur (160°C/320°F).
Hvernig á að velja
Pannan hefur áhrif á eldamennskuna
Þykkt hliðanna og botnsins á pönnunni getur haft áhrif á eldamennskuna þína. Þunnir botnar hitna fljótt en maturinn festist mun auðveldlega. Þessir botnar henta best með gashelluborðum sem taka fljótt og nákvæmlega við sér þegar þú stillir hitann. Þykkir botnar eru lengur að hitna en dreifa hitanum jafnar þannig að maturinn eldast frá öllum áttum. Þú færð bestu útkomuna ef þú velur pönnu sem hentar þínu helluborði og þeim mat sem þú ert að elda.