VARDAGEN
Hnífar, 3 í setti,
ryðfrítt stál/hnota

5.990,-

Magn: - +
VARDAGEN
VARDAGEN

VARDAGEN

5.990,-
Vefverslun: Til á lager
VARDAGEN hnífar haldast beittir í lengri tíma. Hnífarnir eru með þægilegu handfangi úr dökkri hnotu og henta til að skera, saxa og afhýða.

Eiginleikar

Allt er þegar þrennt er

VARDAGEN santoku-hnífurinn er nothæfur til ýmissa verka í eldhúsinu. „Santoku“ er japanska og þýðir „þrír kostir“ eða „þrjú notagildi“. Hnífurinn hentar til skurðar á kjöti, fiski og grænmeti, hvort sem það er skorið í sneiðar, teninga eða saxað fínlega. Hnífurinn er afar stöðugur, er með þægilegu handfangi úr dökkri hnotu og dældir í hnífsblaðinu hindra að matvælin loði við blaðið. Allt er þegar þrennt er!

Efni

Hvað er ryðfrítt stál?

Þú finnur ryðfrítt stál í allt frá byggingamannvirkjum og bílum til vaska og hnífa. Það er auðvelt að sjá hvers vegna það er notað í svona margt. Ryðfrítt stál er hart og endingargott og tærist lítið – sem sagt ryðgar ekki. Það inniheldur vanalega lítið af nikkeli og í IKEA vörur er aðallega notað nikkelfrítt stál. Eins og með marga aðra málma er hægt að endurvinna það aftur og aftur í nýja slitsterka hluti – án þess að það tapi dýrmætum eiginleikum sínum.


Bæta við vörum

Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X