Hægt að nota aftur og aftur því það má vaska pokana upp og loka aftur.
Bættu við fleiri stærðum af ISTAD og vörum úr BEVARA og PRUTA línunum – og þú færð hagnýta geymslu fyrir matinn í skærum, samræmdum litum.
Það er auðvelt og fljótlegt að opna og loka pokanum – aftur og aftur. Tilvalið að taka með í lautarferð.
Hver stærð hefur sinn eigin hálfgagnsæja lit sem auðveldar þér að greina pokana í sundur en samt sjá innihaldið.
Botninn er hannaður þannig að pokinn geti staðið uppréttur og auðvelt sé að fylla hann, til dæmis þegar þú útbýrð nesti fyrir börnin eða fyrir ferðalagið.
Pakkningin raðast snyrtilega í skúffur og skápa – og það er auðvelt að grípa í poka þegar þörf krefur.
ISTAD poki með lokun heldur innihaldinu fersku og hjálpar til við að draga úr matarsóun.
80 pokar í þremur stærðum sem henta mismunandi geymsluþörfum – 30x1 lítri (litlir), 30x2 lítrar (miðstærð) og 20x4 lítrar (stórir).
ISTAD pokar eru úr minnst 50% efni úr sykurreyr.