63.900,-
63900
Pokagormar ná yfir alla dýnuna, þeir lofta vel um og veita þægindi, einnig þegar tvær dýnur eru hlið við hlið.
Kemur í flatri pakkningu og því auðvelt að taka með heim.
Form/Hönnunarferli
Við erum með lausnir fyrir litlu áskoranir lífsins
Við þekkjum þetta – þú hefur hlakkað til þess alla vikuna að kúra með kaffibollann uppi í rúmi þegar börnin eða hundurinn hoppa upp í og kaffið hellist niður og út um allt. Sem betur fer erum við búin að sjá fyrir þessu. Með áklæðum sem auðvelt er að taka af og þvo verður rúmið eins og nýtt á augabragði. Og ekki nóg með það – ef þú ákveður að breyta útliti svefnherbergisins bjóðum við upp á áklæði í mismunandi litum, seld sér. Vonandi nærðu að sofa út á sunnudaginn.
Eiginleikar
Gæði, þægindi og frábært verð – þú getur fengið það allt
Er það hægt, virkilega? Við skiljum af hverju þú spyrð – því hvernig færð þú mikil gæði á viðráðanlegu verði? Snjöllu verkfræðingarnir okkar elska áskoranir sem þessar. Við erum búin að leggja mikið á okkur til að tryggja að hver einasti hluti hafi verið þróaður og prófaður til að hann endist um ókomin ár. Það eina sem þú þarft að gera er að ákveða hvað þér finnst þægilegast.