IDANÄS
Bólstruð rúmgrind,
160x200 cm, Gunnared dökkgrátt

64.950,-

ekkert valið
Magn: - +
IDANÄS
IDANÄS

IDANÄS

64.950,-
Vefverslun: Til á lager
Aflíðandi höfðagafl og mjúk fylling gerir bólstruðu IDANÄS rúmgrindina einstaklega þægilega. Vaknaðu í rólegheitunum með kaffibolla og dagblað! Skrauthnappar og snúnir viðarfætur færa rúmgrindinni sígilt yfirbragð.
IDANÄS bólstruð rúmgrind

Okkar sýn á pólýester

Pólýester er endingargott efni sem krumpast lítið og er auðvelt í umhirðu. Það er því tilvalið í fjölda vefnaðarvara eins og teppi, púða, sængur og kodda. Ókosturinn við nýtt pólýester er að það er unnið úr olíu, kolum eða náttúrugasi. Það þýðir að þegar við notum nýtt pólýester erum við að eyða dýrmætum auðlindum jarðarinnar. Okkar svar við því er að skipta út nýju pólýester fyrir endurunnið í vörunum okkar. Árið 2020 höfðum við náð því að skipta út 79% af nýju pólýesteri sem notað er í IKEA vefnaðarvörur og munum halda áfram og setja meiri kraft í þau umskipti þar til við höfum náð því markmiði að nota eingöngu endurunnið pólýester í vörunum okkar.

Endurunnið pólýester í stað nýs

Upphaflega var allt pólýester unnið úr hráolíum sem ekki eru endurnýjanlegar en við erum að skipta því út fyrir endurunnið pólýester. Einn kostur pólýesters er að það er hægt að endurvinna það aftur og aftur án þess að það dragi úr gæðum efnisins. Þegar við framleiðum vörur úr endurunnu pólýester veitum við efni sem er ekki lífbrjótanlegt annað líf og drögum úr úrgangi sem annars færi í landfyllingu eða jafnvel í sjóinn. Í staðinn notum við PET og önnur pólýesterefni í vefnaðarvörur, kassa, eldhúsframhliðar og jafnvel í lampa. Endurunnið pólýester er alveg jafn gott og nýtt pólýester hvað varðar útlit, gæði og virkni og losar 50% minna af koltvísýringi. Vörur úr endurunnu pólýester eru alveg jafn hreinar og öruggar og vörur úr nýju pólýester.

Áskoranir við notkun á endurunnu pólýester

Endurunnið pólýester gerir okkur minna háð olíu. Magnið af pólýester sem við endurvinnum er samsvarandi því magni af hráolíu sem við spörum (það er fyrir utan hugsanlega litun eða aðra meðhöndlun á endurunnu pólýester). Með nokkrum undantekningum liggur áskorunin ekki í því að endurvinna pólýesterið heldur að gera það aðgengilegt fyrir alla með því að halda verðinu viðráðanlegu. Það er oft kostnaðarsamara fyrir neytandann að velja vörur með minni umhverfisáhrif. Því viljum við breyta með því að gera endurunnið pólýester aðgengilegt fyrir sem flesta og á viðráðanlegu verði.

Eingöngu endurunnið pólýester

IKEA hefur skuldbundið sig til að hætta notkun á jarðefnum og nota aðeins endurnýjanleg og endurvinnanleg efni fyrir árið 2030. Við erum að vinna í því að hraða þessu ferli fyrir pólýester í vörunum okkar og miðum að því að skipta út öllu nýju pólýester fyrir endurunnið í vefnaðarvörurnar okkar. Árið 2020 höfðum við skipt út 79% af nýju pólýester sem notað er í vefnaðarvörur okkar fyrir endurunnið pólýester. Það þýðir að við höfum notað 130.000 tonn af endurunnu pólýester og sparað 200.000 tonn af nýju pólýester. Við höfum ekki náð 100% markinu enn þá, en við erum komin langt á leið og höfum sigrast á mörgum hindrunum. Allt þetta magn gerir það að verkum að við erum leiðandi í notkun á endurunnu pólýester og við vonumst til þess að ákvarðanir okkar hvetji önnur fyrirtæki til breytinga.

Ábyrgur uppruni

Við hjá IKEA krefjumst þess að allt endurunnið pólýester sem notað er í vörurnar okkar sé frá endurvinnsluaðilum sem uppfylli „Global Recycled Standard“ og rekjanleiki IKEA vörunnar er tryggður með skilyrðum sem við setjum birgjunum okkar. Með því að nota einungis endurunnið pólýester sem uppfyllir skilyrði „Global Recycled Standards“ getum við tryggt að vinnuskilyrði, öryggi og umhverfisaðstæður séu í lagi í framleiðsluferlinu. Þið teljum að GRS-staðallinn sé sá besti á markaðinum í dag. Við vinnum með samstarfsaðilum okkar og samtökum í textíliðnaðinum eins og „Textile Exchange“ við að bæta staðla sem snúa að endurunnum efnum, meðal annars með tilliti til rekjanleika efnisins út fyrir endurvinnslustöðvarnar.

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Francis Cayouette, hönnuður

„Nú til dags notum við rúmið okkar ekki aðeins til að sofa, við vinnum, lærum og horfum á sjónvarpið í því – og eigum í stafrænum samskiptum við vini og fjölskyldu. Því fékk ég þá hugmynd að hafa aflíðandi höfðagaflinn á bólstraða IDANÄS rúminu eins notalegan og bak á sófa. Hann þarf að vera allt í senn, róandi og þægilegur en samt léttur, stílhreinn og glæsilegur. Umfram allt vil ég að sem flestir líki við rúmið og dvelji sem mest í því!“

Efni

Hvað er pólýester?

Pólýester er endingargott, einangrandi efni sem þornar hratt og er tilvalið í vefnað eins og fyllingu í kodda, sængur og húsgögn. Efnið er unnið úr hráolíu sem er takmörkuð auðlind. Þar sem IKEA vill leggja sitt að mörkum í að draga úr notkun hráolíu erum við smám saman að skipta yfir í endurunnið og rekjanlegt pólýester sem meðal annars er unnið úr PET-flöskum. Það sem er gott við pólýester er að það er hægt að endurvinna það aftur og aftur án þess að það tapi eiginleikum sínum.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X