SÖDERHAMN sófarnir eru djúpir, lágir og mjúkir og lausir púðar við bakið gefa góðan stuðning
Það er auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem þú getur þvegið það í þvottavél og það er lítið mál að fjarlægja það og setja aftur á.
Hægt er að nota allar einingar í SÖDERHAMN línunni einar og sér eða setja þær saman til að skapa þann sófa sem þig langar í, stóran eða smáan.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is
Kelinge áklæðið er úr mjúku pólýester. Flauelsefnið er með breiðum rifflum, þægilegt og mjúkt viðkomu og með örlitlum gljáa sem gefur því fallegan og notalegan blæ.
Létt og opin hönnun með háum fótum og þunnum línum en samt mjög þægileg vegna teygjunnar í botninum og eftirgefanlega svampsins í sessunum.
Ef þú þarft stærri sófa getur þú bætt við einingum eftir þörfum.
Dýpt sófans gerir hann hentugan til að slaka á eða jafnvel fá sér blund.