Efni
Hvað er bómull?
Bómull er ein af vinsælustu náttúrulegu trefjunum í heiminum í dag. Vefnaðarvara úr bómull er mjúk, endingargóð og það er hægt að þvo hana á háum hita. Hún andar einnig vel og dregur í sig raka – sem gerir það að verkum að gott er að hafa hana næst líkamanum. Við hjá IKEA notum meira og meira af endurunninni bómull og kappkostum að tryggja að öll ný bómull sem við notum sé ræktuð og unnin með minna magni af skordýraeitri, áburði og vatni.
Energy and Resources
Lýósell og bómull: Fullkomin blanda fyrir góðan svefn
Lýósell og bómull er fullkomin blanda í sængurfatnað. Lýóselltrefjar eru unnar úr við og þurfa því ekki mikið af skordýraeitri eða áburði við ræktun. Þegar þeim er blandað við bómull, eins og við höfum gert í ULLVIDE lökunum og koddaverunum, verður svefnumhverfið einstaklega notalegt. Þessi tvö efni draga í sig og flytja raka frá líkamanum svo þú fáir góðan nætursvefn.