995,-
995
People and Communities
Ábyrgð alla leið
Við viljum að allt kakó sem við seljum og bjóðum upp á í verslunum okkar sé ræktað og framleitt á ábyrgan hátt. TIl að tryggja að við stöndum undir því markmiði höfum við ákveðið að vinna með Rainforest Alliance-vottunina. Það er leiðandi merki sem, meðal annars, vinur að því að varðveita staðbundin vistkerfi og skapa betri efnahagsleg- og lífsskilyrði fyrir bændurna. Umhyggja og ábyrgð alla leið frá gróðursetningu til súkkulaðikökunnar.
Eiginleikar
Sjö er happatala
Í Svíþjóð kallast kaffitíminn „fika“ eða „kafferep“ og þar er rík hefð fyrir því að koma saman og gæða sér á smákökum og kaffi. Hefðin hófst á 19. öld og þá átti gestgjafinn að bjóða upp á sjö gerðir af smákökum. Ef færri gerðir voru á boðstólum þótti það nánasarlegt og ef boðið var upp á fleiri gerðir var það tilgerðarlegt. Við í IKEA kunnum vel við þessa leið til að eiga góðar stundir með okkar nánustu, sama hversu margar gerðir af smákökum er boðið upp á.
Samantekt
Vinsælasta kaka Svía
Þekkt sem „Prinsessukaka" þar sem hún er nefnd eftir sænsku prinsessunum Margaretha, Martha og Astrid. Loftmikil kaka á svampbotni fyllt með hindberjasultu, þeyttum rjóma og vanillusósu og þakin með grænu marsipani. Við gerðum okkar eigin útgáfu, KAFFEREP rjómatertu þakta marsipani. Önnur stærð og bleik en ekki græn en þó sama gómsæta bragðið.