195,-
195
Form/Hönnunarferli
Sætur eða saltur, hefðbundinn eða nýstárlegur
Svíar elska allar gerðir af lakkrís. Þessi sæti hefðbundni er vinsæll víða um heim en þessi luma á óvæntu bragði: Saltlakkrís. Saltað sælgæti getur hljómað svolítið furðulega en ef þú þorir að prófa þá lofum við einstakri bragðupplifun. FYRTAKT lakkrís inniheldur eingöngu náttúruleg bragðefni og því er hann bragðgóður í alla staði. Kannski er hann nýja uppáhaldssælgætið þitt – bæði sá salti og sæti!
Eiginleikar
Sætur hápunktur vikunnar
Það er loks komin helgi og spenna liggur í loftinu. Af hverju? Vegna þess að það er kominn tími á sænska hefð – laugardagsnammi. Í margar kynslóðir hefur það verið vikulegur siður hjá sænskum fjölskyldum að láta undan sætindaþörfinni og gæða sér á ljúffengu og litríku nammi einu sinni í viku. FYRTAKT línan inniheldur sælgæti í ýmsum litum og lögun – sætt, súrt og salt. Fullkomið til að halda upp á laugardaginn – sæta hápunkt vikunnar!