Hvíldu fæturna á KJUGE skemlinum, hafðu hann sem aukasæti fyrir gesti eða notaðu hann sem hirslu til að koma skipulagi á heimilið.
Skemmtilegt form sem grípur augað og jafnvel enn skemmtilegra ef þú raðar nokkrum skemlum saman.
Smellpassar í KALLAX hillueiningu. Notaðu litla efnisbútinn til að draga skemilinn úr hillunni þegar þú þarft á honum að halda.
Auðvelt að hafa með sér heim þar sem hann er í litlum pakkningum, einnig auðvelt að setja hann saman, færa til og nota um allt heimilið.
Áklæðið er úr Öreryd efninu. Fallegt, mjúkt og slétt með smá áferð. Skemmtilegir litir sem færa skemlinum dýpt.