Hægt er að taka áklæðið af og setja í vél sem auðveldar þrif. Þú þarft aðeins að skrúfa sætið af til að fjarlægja áklæðið og þvo til að halda stólnum ferskum.
Fótskemillinn, bólstrunin, upphækkað bakið og hliðarnar gera þennan barstól að rúmgóðu og þægilegu sæti við eldhúseyjuna.
Áklæðið er úr mjúku og endingargóðu bómullar- og pólýesterefninu Knäbäck, með einstakri áferð og fíngerðu yfirbragði. Auðvelt að þrífa og þolir mikla notkun.
Sterkbyggður, ferkantaður fótskemill úr stáli eykur stöðugleika og dregur úr álagi á fæturna.
Lögun baksins og armarnir veita hámarksstuðning og draga úr álagi, jafnvel þegar setið er lengi.
Hannaður fyrir þægindi með breiðu sæti – hentar öllum líkamsgerðum.