11.450,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
BERGMUND
Stólfætur úr gegnheilum við sem er slitsterkt náttúrulegt hráefni.
Þú getur setið vel í langan tíma. Hallinn á bakinu veitir góðan stuðning. Bakhallinn ásamt bólstruðu sætinu gerir stólinn hentugan fyrir langar stundir við matarborðið.
BERGMUND stóllinn var hannaður til að gera fólki kleift að sitja lengi við matarborðið án þess að fá verk í bak eða fótleggi. Eftir að hafa kynnt okkur nýja rannsókn um mannslíkamann þróuðum við tækni sem gerir okkur kleift að hanna sessu sem veitir sem mest þægindi.
Þótt setstaða virðist ekki mjög virk staða, þá notum við samt allt frá beinum og vöðvum, sinum og brjósks til liðamóta. „Það er mikilvægt að stóllinn styðji við rétta staði líkamans svo þú getir setið lengur á þægilegan hátt,“ útskýrir efnishönnuðurinn Anders Bergner.
Anders og teymið hans kynnti sér nýja rannsókn til þess að hanna lögun sætisins og finna hentugasta hornið milli sætis og baks. Þau komust að ýmsu um mannslíkamann, til dæmis að setbein eru eins í næstum öllu mannfólki. „Það skiptir ekki máli hvort manneskjan er 1,85 m á hæð eða lægri. Skálarlaga undirlag sessunnar passar því fyrir 99% fólks í heiminum.“
Pólýesterefnið í sessunni og bakinu samanstendur af fíngerðum trefjum sem liggja lóðrétt og veita mikinn teygjanleika í samanburði við trefjar sem eru í flæktar saman. Anders og teymið þróaði nýstárlega tækni til að auka þægindi sessunnar með því að móta fyllinguna. „Þetta er eins og vöfflujárn. Pólýestertrefjarnar fara inn í sérstakt tæki þar sem þær fá rétta lögun.“ Eftir að hafa varið nokkrum árum í hönnun stólsins vonast Anders að BERGMUND geri fólki kleift að staldra við og slaka á aðeins lengur. „Þegar fólki líður vel er hægt að sitja lengi saman og beina athyglinni að samræðunum.“
„Þegar við hönnuðum BERGMUND vildum við gera stóla sem henta sem flestum alla daga ársins. Þú getur skipt um áklæði svo það passi árstíðinni, tilefninu eða breyttum stíl og valið úr mismunandi litum og síddum. Það eina sem ekki breytist er mjúkt og þægilegt sætið og sniðskornir fæturnir sem gera það að verkum að áklæðið nær að liggja vel á grindinni. Við vonumst til þess að stólarnir geri þér og vinum þínum kleift að staldra við og slaka á aðeins lengur.“
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Stólfætur úr gegnheilum við sem er slitsterkt náttúrulegt hráefni.
Þú getur setið vel í langan tíma. Hallinn á bakinu veitir góðan stuðning. Bakhallinn ásamt bólstruðu sætinu gerir stólinn hentugan fyrir langar stundir við matarborðið.
Vörunúmer 004.001.40
1 pakkning(ar) alls
Hreinsaðu með ryksugu. Þrífðu með mildu sápuvatni. Þurrkaðu með hreinum klút. Léttir blettir nást af með hreinsiefni fyrir textíl eða með svampi, sem hefur verið vættur í vatni eða mildu sápuvatni. Hertu skrúfurnar eftir þörfum fyrir hámarksgæði.
Stóllinn hefur verið prófaður fyrir notkun á heimilum og uppfyllir kröfur um endingu og öryggi samkvæmt eftirfarandi stöðlum: EN 12520 og EN 1022.
Notaðu með BERGMUND áklæði, fæst í mörgum litum og gerðum.
Hægt að bæta við FIXA filttöppum, en þeir vernda undirliggjandi yfirborð fyrir sliti.
Aðeins ætlað til notkunar innandyra.
Hægt að taka í sundur fyrir endurvinnslu eða orkunýtingu ef það er mögulegt á þínu svæði.
Lengd: | 62 cm |
Breidd: | 51 cm |
Hæð: | 23 cm |
Heildarþyngd: | 8,65 kg |
Nettóþyngd: | 7,11 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 72,0 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 004.001.40
Vörunúmer | 004.001.40 |
Vörunúmer 004.001.40
Hámarksþyngd: | 110 kg |
Breidd: | 52 cm |
Dýpt: | 59 cm |
Hæð: | 95 cm |
Breidd sætis: | 52 cm |
Dýpt sætis: | 41 cm |
Hæð sætis: | 51 cm |
Vörunúmer: | 004.001.40 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 62 cm |
Breidd: | 51 cm |
Hæð: | 23 cm |
Heildarþyngd: | 8,65 kg |
Nettóþyngd: | 7,11 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 72,0 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls