Stólfætur úr gegnheilum við sem er slitsterkt náttúrulegt hráefni.
Eftir skemmtilega máltíð með krökkunum er gott að vita að þú getur auðveldlega tekið áklæðið af og þvegið í vél.
Áklæðið á stólinn er í einu lagi og festist með frönskum rennilás svo auðvelt er að taka það af og setja það aftur á.
Áklæðið á stólnum er úr beinum pólýestertrefjum með litlum bilum á milli – sem gerir það einstaklega mjúkt með góðri öndun og því heldur það vel sama hitastigi þegar þú situr.
Skálarlaga sætið er aðlagað að líkamsbyggingu sem flestra. Fyllingin er svo aðlöguð fyrir sem mest þægindi með nýrri tækni.
Bakið styður vel við hrygginn og halli þess og sætisins er til þess fallinn að ná sem bestri setstöðu svo þú getir dvalið aðeins lengur við borðstofuborðið.
GUNNARED áklæðið er úr dope-lituðu pólýesterefni. Endingargott og hlýlegt efni sem minnir á ull og er með blandaðri tvítóna áferð.
Þú velur útlit stólsins. BERGMUND fæst í hvítu, svörtu og með eikaráferð og áklæðin eru fáanleg í mismunandi efnum og litum.