Eiginleikar
Falleg borðstofa í samræmdum stíl
HAUGA línan er hönnuð til að einfalda lífið heima fyrir, bæði á litlum og stórum heimilum. Línan inniheldur viðarborð og -stóla í hefðbundnum stíl sem setja svip á rýmið. Í línunni eru einnig hirslulausnir af ýmsum stærðum og gerðum til þess að geyma borðbúnað, servíettur, kerti og annað til daglegra nota. HAUGA vörurnar auðvelda þér að hanna borðstofu sem þú nýtur þess að vera í.