9.950,-
9950
Efni
Hvað er viðarspónn?
Viðarspónn er þunnt lag af við sem fest er á hluti eins og spónaplötu til að gera yfirborðið endingargott og færa því náttúrulega viðaráferð. Algengustu spónartegundirnar eru birki, askur, eik og beyki og við höfum gert sérstakt lakk sem ver spóninn fyrir upplitun og viðheldur náttúrulegri áferð viðarins. Það er mikill kostur ef spónninn er örlítið þykkari því það gefur þér kost á að pússa hann upp og gera við ef eitthvað kemur upp á og þar með lengja endingartíma húsgagnsins.
Hugleiðingar hönnuða
Knut Hagberg og Marianne Hagberg, hönnuðir
„Hugmyndin að LISABO var að gera línu úr við sem væri endingargóð, auðveld í samsetningu og liti út fyrir að fljóta í lausu lofti. Við ákváðum að nota matt lakk á asksspóninn til að húsgögnin héldu náttúrulegri viðaráferðinni. Við notuðum sérstaka tækni við framleiðsluna til að ekki væri þörf á stoðum og fyrir sniðskornar brúnirnar sem gefa borðinu handgert yfirbragð. Hægt er að nota húsgögnin á ýmsa vegu og þau henta vel bæði saman og ein og sér.“