DIGNITET
Gardínuvír,
500 cm, ryðfrítt stál

1.490,-

1.390,-

Magn: - +
DIGNITET
DIGNITET

DIGNITET

1.490,-
1.390,-
Vefverslun: Til á lager
Sett með festingum og vír í stílhreinum hlutlausum stíl sem býður upp á ýmsa möguleika. Þú getur notað það til að hengja upp gardínur, setja upp skilrúm til að afmarka rými eða til að hylja opna hirslu.

Efni

Hvað er ryðfrítt stál?

Þú finnur ryðfrítt stál í allt frá byggingamannvirkjum og bílum til vaska og hnífa, Það er auðvelt að sjá hvers vegna það er notað í svona margt. Ryðfrítt stál er hart og endingargott og tærist lítið – sem sagt ryðgar ekki. Það inniheldur vanalega lítið af nikkeli og í IKEA vörur er aðallega notað nikkelfrítt stál. Eins og með marga aðra málma er hægt að endurvinna það aftur og aftur í nýja slitsterka hluti – án þess að það tapi dýrmætum eiginleikum sínum.

Eiginleikar

Í loftfimleika

DIGNITET gardínuvírinn er ekki ætlaður í loftfimleika, en þú getur hengt hann upp hvar sem er: Á veggi, í loft og horn. Þú getur notað hann til að hengja upp gardínur fyrir gluggana eða veggteppi á veggina, í útskotsglugga og veggskot eða til að skipta niður rými.

Gæði

Tilbúið fyrir sturtuna

Allir hlutirnir í DIGNITED línunni eru framleiddir úr ryðfríu stáli, sem þýðir að það er bæði hægt að nota þá inni á baðherbergi og utandyra. Þú getur sett upp hengi fyrir svalirnar eða baðkarið og haldið kvöldgolunni fyrir utan og morgunsturtunni fyrir innan.

Samantekt

Allsstaðar - úti og inni

Þú getur sett DIGNITET gardínuvírinn á veggi, í loft og í horn. Hvort sem það er til að hengja upp gardínur, tjöld eða spjöld, hvar sem er, í hvaða rými sem er – jafnvel í útskotsgluggum og veggskotum eða sem skilrúm til að skipta upp rými. Allir hlutirnir eru úr ryðfríu stáli, svo það má nota DIGNITET úti og inni á baði. Þú getur notað hann til að festa upp sturtuhengi – eða á svalirnar til að tjalda fyrir goluna.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X