DYTÅG
Gardínur, 2 í pakka,
145x250 cm, dökkdrappað

11.990,-

Magn: - +
DYTÅG
DYTÅG

DYTÅG

11.990,-
Vefverslun: Til á lager
Sígildar dökkdrappaðar gardínur úr náttúrulegum hör veita þér næði og færa rýminu afslappað yfirbragð. Efnið passar hvaða árstíð sem er, fellur vel og hleypir birtu og lofti í gegnum sig.
DYTÅG gardínur, 2 í pakka

Gardínur sem hanga fallega

DYTÅG gardínur úr hör sinna nokkrum mikilvægum verkefnum. Þær dempa dagsbirtuna, hindra að fólk sjái inn og gera herbergið notalegt. Til þess að láta hörefnið líta svona vel út notum við ... loft.

Hör hefur verið notaður í þúsundir ára og er enn jafnvinsælt efni. Alexander van der Spree, vöruhönnuður hjá okkur, er mikill aðdáandi. „Ég elska hör. Efnið er einfalt í umhirðu, endingargott og verður fallegra og mýkra með hverjum þvotti.“

Heitt loft í stað vatns

Þegar hörefnið er nýtt getur það verið ögn stíft og mýkist svo með nokkrum þvottum, sem þarf til þess að gardínurnar hangi fallega. „Vörur úr hör eru oft þvegnar í framleiðsluferlinu svo þær verði mýkri. Við fundum aðferð sem kemur í stað þess að þvo þær með vatni – við sprautum heitu lofti á gardínuna til þess að mýkja hana,“ segir Alexander. Þetta þýðir að þegar þú kaupir gardínurnar eru þær nú þegar mjúkar og hanga fallega, og við notum minna af vatni og eiturefnum. Svo þegar þú þværð gardínurnar næs verða þær bara enn fallegri. Ef þú vilt afslappað útlit getur þú hengt þær strax upp eftir þvott án þess að strauja náttúrulegu krumpurnar.

Þægileg birta og notalegt andrúmsloft

DYTÅG gardínurnar fást í nokkrum litum og passa inn í flest rými. Alexander útskýrir hvernig gardínurnar gera birtuna mismunandi eftir lit. „Þræðirnir í efninu eru óreglulegir og hleypa því birtunni skemmtilega í gegn. Birtan verður þægileg og hlýleg. Gardínurnar gefa rýminu náttúrulegt og notalegt yfirbragð.“

Sjá meira Sjá minna

Eiginleikar

Saumaðu án þess að nota nál og tvinna

Með SY faldborðanum sem hægt er að straujað á getur hver sem er „saumað" gluggatjöld. Það eina sem þú þarft að gera er að klippa efnið í rétta stærð, falda brúnina, leggja borðann á réttan stað og festa með því að strauja yfir hann.

Efni

Hvað er hör?

Við mannfólkið uppgötvuðum hvernig hægt er að vinna trefjarnar í stöngli hörplöntunnar og spinna þær og vefa í endingargott hörefni fyrir þúsundum ára. Enn í dag er hörnum hampað fyrir eiginleika sína. Hann er til dæmis einstaklega rakadrægur sem hentar vel í diskaþurrkur. Mjúkt yfirborð hörtrefjanna gefur rúmfatnaðinum notalegt og svalandi yfirbragð en það má einnig blanda hör með bómull til að fá örlítið mýkri áferð.

Energy and Resources

Gardínur sem falla vel

DYTÅG gardínur úr hör tempra birtu að utan og færa rýminu hlýlegt og notalegt yfirbragð. Til að tryggja að gardínurnar falli vel um leið og þú hefur hengt þær upp notum við aðferð þar sem hörefnið er látið fara í gegnum heitt loft. Það gefur sömu niðurstöðu og ef þær eru þvegnar en það dregur úr notkun á vatni og efnum.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X