Gardínur með gardínuborða sem gerir þér kleift að hengja þær beint á stöngina með þar til gerðum vösum eða flipum. Þú getur líka hengt gardínuna á gardínubraut með hjólum og krókum.
Með hjólum og krókum skapast yfirleitt formlegra og fágaðra yfirbragð þar sem ekki sést í festingarnar.
Glæsilegt þykkt flauelið fellur vel og fangar birtuna sem gerir litinn dýpri og kraftmeiri. Þéttur vefnaðurinn mildar ljós sem kemur að utan, dempar hljóð og dregur úr hnökrum.
Gardínurnar hleypa smá birtu í rýmið og koma í veg fyrir glampa á sjónvarp og tölvur. Þær veita að auki næði þar sem erfitt er að greina form og ljós inni þegar þú stendur fyrir utan.
Gardína sem er 300 cm á lengd má hengja upp við loftið til að skapa glæsilegt yfirbragð sem lætur lofthæðina virðast meiri. Þú getur líka hengt hana upp fyrir ofan glugga og leyft henni að falla niður á gólf.
Þú getur valið um mismunandi síddir og liti og því ætti að vera auðvelt að finna gardínur sem passa þínum glugga.