Gardínurnar dempa dagsbirtuna og hindra að aðrir sjái inn.
Góð leið til að draga úr dragsúg á veturna og hita á sumrin.
Flauel gefur frá sér lúxustilfinningu og hjálpar þér að gera útlit og stíl rýmisins glæsilegra. En mjúkt efnið skapar einnig afslappað andrúmsloft með hlýlegu og notalegu yfirbragði.
Gardínur með gardínuborða sem gerir þér kleift að hengja þær beint á stöngina með þar til gerðum vösum eða flipum. Þú getur líka hengt gardínuna á gardínubraut með hjólum og krókum.
Með hjólum og krókum skapast yfirleitt formlegra og fágaðra yfirbragð þar sem ekki sést í festingarnar.
Glæsilegt þykkt flauelið fellur vel og fangar birtuna sem gerir litinn dýpri og kraftmeiri. Þéttur vefnaðurinn mildar ljós sem kemur að utan, dempar hljóð og dregur úr hnökrum.
Efnið dregur úr dagsbirtu og glampa. Það veitir næði þar sem það kemur í veg fyrir að fólk sjái inn. Þegar dimmt er er hægt að greina útlínur í gegnum þær ef rýmið er upplýst.
Gardína sem er 300 cm á lengd má hengja upp við loftið til að skapa glæsilegt yfirbragð sem lætur lofthæðina virðast meiri. Þú getur líka hengt hana upp fyrir ofan glugga og leyft henni að falla niður á gólf.
Þú getur valið um mismunandi síddir og liti og því ætti að vera auðvelt að finna gardínur sem passa þínum glugga.