Nýtt
SKOGSNÄSSLA
Gardínur, 2 í pakka

11.990,-

Magn: - +
SKOGSNÄSSLA
SKOGSNÄSSLA

SKOGSNÄSSLA

11.990,-
Vefverslun: Til á lager
Bláleit blóm færir sumarið inn á heimilið allt árið um kring. SKOGSNÄSSLA gardínur eru úr lýósell og hampi með mjúkri áferð sem líkist hör og dempar birtu. Passar bæði á gardínustöng og -braut.
SKOGSNÄSSLA gardínur, 2 í pakka

Ný sýn á blómamynstur

Blómamynstur eru sígild í innanhússhönnun. Að þessu sinni vildum við þó nálgast þetta tímalausa þema á nýjan hátt. Með stíl grafíska hönnuðarins Stinu Persson fannst okkur við vera á réttri leið. Útkoman er falleg vörulína þar sem abstrakt blóm og mjúkar, flæðandi línur eru rauður þráður í gardínum, púðum og rúmfatnaði.

„Stina vinnur með vatnsliti á leikandi og grafískan hátt sem gefur ferskan og spennandi blæ,“ segir Karin Dahlström, hönnunarstjóri vefnaðarvara. „Við gáfum henni ákveðnar leiðbeiningar – eins og um litasamsetningu og hvaða vörur ættu að vera með. Vörulínan þurfti að vera í stíl, henta allan ársins hring og auðvelt að para saman við aðrar vörur fyrir stofu og svefnherbergi.“

Frá pensilstrokum yfir í vefnaðarmynstur

Það krafðist náinnar samvinnu innan vefnaðarvöruteymisins að umbreyta vatnslitaverkum Stinu í fallegt vefnaðarmynstur og vörur fyrir heimilið. „Þetta snerist um að finna rétta stærðarhlutfallið fyrir myndefnið svo það passaði til dæmis á púða og finna út endurtekninguna – það er að segja hvernig mynstrið ætti að flæða óslitið yfir efnið.“ Annar mikilvægur þáttur var að fínpússa litina til að tryggja að þeir kæmu út nákvæmlega eins og til stóð. „Þessi vinna, jafnvel stafrænu hlutar hennar, er eins konar handverk. Það þarf bæði nákvæmni og mikla reynslu til að ná þessu réttu,“ útskýrir Karin.

Tjáningarmáttur glugga

Stærri og djarfari mynstur enda oft á púðum og skrautvörum – en hér völdum við að hafa sum þeirra á SKOGSNÄSSLA og PELARKÖRSBÄR gardínum. „Þegar við sáum glæsileg málverk Stinu vildum við endilega að þau fengju að njóta sín,“ segir Karin, sem fékk nýjan áhuga á vatnslitum við vinnuna á vörulínunni. „Ímyndaðu þér bara að einn litur geti skapað svo marga mismunandi tóna einfaldlega með því hvernig hann er blandaður. Vatnslitun er svo tjáningarrík og getur virkilega bætt einhverju einstöku við heimilið.“

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Stina Lanneskog, hönnuður

„Innblásin af óvæntum mynstrum úr náttúrunni nær textíllínan fyrir vorið 2026 að fanga töfrandi form og líflega liti á óvæntan en fallegan hátt. Ég notaði blek og vatnsliti sem einhvern vegin öðlast líf af sjálfu sér og hentar einstaklega vel til að teikna viðkvæm laufblöð og krónublöð. Sem Svíi þrái ég alltaf gróður og blóm eftir langan vetur og ég vona að vörulínan lífgi upp á heimilið með fallegum litum og örlítið af blómlegri náttúru.“

Eiginleikar

Efnið dregur úr dagsbirtu

Efnið dregur úr glampa og dagsbirtu þegar það er bjartara úti. Það veitir notalegt næði þar sem fólk sér ekki inn á daginn. Þegar það er dimmt úti og kveikt á ljósi inni þá er hægt að greina útlínur utan frá.


Svipaðar vörur

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X