Metravörurnar eru frábærar til að sauma eitthvað einstakt og persónulegt. Hvort sem það er til að gefa áfram eða eiga heima.
Fjölhæft efnið hentar vel í gardínur, föndur, innanhússskreytingar og önnur saumaverkefni sem þú hefur ætlað þér að drífa í.
Þú getur notað efnið í bót á uppáhaldsgallabuxurnar, til að sauma bangsa eða svuntu með 15 vösum.
Efnið er 150 cm á breidd og 300 cm á lengd. Það er úr endurunninni bómull og má strauja og setja í þvottavél.
Efnisbútur er eins og autt blað – og býður upp á óendanlega möguleika. Slepptu ímyndunaraflinu lausu. Enginn hlutur er of lítill og engin hugmynd of stór.