Nýbyggingar, íbúðarbyggingar og stærri verkefni
Vantar þig snjallar og hagkvæmar lausnir til að innrétta margar íbúðir í einu? Við getum aðstoðað þig við verkefnið, sama af hvaða stærð það er. Ráðgjafar Fyrirtækjaþjónustunnar þekkja vöruúrval og þjónustu IKEA best og veita faglega ráðgjöf ásamt persónulegri þjónustu, þér að kostnaðarlausu.
Við erum með allt sem þú þarft fyrir verkefnið
Fullbúin eldhús, snjallar svefnherbergishirslur, baðherbergisskápar, lýsing, aukahlutir og margt fleira – þú færð allt þetta í IKEA. Við erum með gæðavörur á góðu verði, 25 ára ábyrgð er á eldhúsinnréttingum og 5 ára ábyrgð á heimilistækjum.Sparaðu tíma, peninga og umstang
Starfsfólk Fyrirtækjaþjónustunnar vinnur í samstarfi við reynda smiði og veitir þér faglega ráðgjöf, sér um að sérpanta vörur, tína þær til og senda á áfangastað. Þjónustan er ókeypis og sérfræðingar okkar sjá um að aðlaga sendingu og afhendingu eftir því sem hentar hverju verkefni.
Þér er velkomið að hafa samband við okkur. Bókaðu ráðgjöf og/eða sendu inn pöntun með því að senda póst á sala@IKEA.is
Fyrirspurnir í síma 520 2500 milli kl. 11 og 12 virka daga. Athugið að ekki er tekið við pöntunum símleiðis.
Hægt er að skrá sig á póstlista fyrirtækjaþjónustunnar hér