Að tryggja ábyrg innkaup með IWAY

Við trúum að með öllu sem við gerum fylgi ábyrgð að hafa jákvæð áhrif á bæði samfélög og jörðina. Það á líka við um það hvernig við vinnum með birgjum og þjónustuaðilum í virðiskeðjunni okkar. Það er bara hægt ef samstarfsaðilar okkar deila sýn og skuldbindingu IKEA gagnvart sjálfbærni. Þess vegna höfum við IWAY, siðareglur IKEA fyrir birgja.

 
 
 
 
Hvað er IWAY?
IWAY er leið IKEA til að versla vörur, þjónustu, efni og íhluti á ábyrgan hátt. Kerfið setur skýrar væntingar og verklag um það hvernig við nálgumst umhverfis-, félags- og kjaramálum auk dýravelferðar. IWAY er skylda fyrir alla stærri birgja og þjónustuaðila sem vinna með IKEA.
Síðan við kynntum IWAY fyrst árið 2000 höfum við byggt upp áreiðanlegt og öflugt kerfi sem við getum treyst á til að styðja, hvetja og vinna saman að með birgjum okkar.

Í gegnum IWAY höfum við áhrif á fjögur meginsvið með því að:
  • vinna með birgjum til að stuðla að ábyrgu innkaupaferli
  • tryggja mannsæmandi og þýðingarmikla vinnu fyrir starfsfólk
  • virða réttindi barna
  • bæta velferð dýra í virðiskeðju IKEA
Horfðu: IWAY, IKEA leiðin til að vinna með birgjum

IWAY byggir á alþjóðlega viðurkenndum stöðlum og grunnreglum um mannréttindi, umhverfisvernd og heilsu og öryggi starfsfólks, auk þess á eigin gildum og reglum IKEA. Það er grunnurinn að sjálfbærnimálum okkar í heild, bæði með beinum birgjum og undirbirgjum þeirra í gegnum alla virðiskeðju IKEA.

Kíkjum á IWAY kröfurnar
IWAY er byggt á 10 grunnreglum sem endurspegla afstöðu IKEA til ýmissa umhverfis- og félagslegra málefna:

IWAY grunnreglurnar:
  1. Grunnreglur IWAY eru studdar af skilvirkum ferlum og opnum samskiptum.
  2. Rekstri er sinnt á löglegan og heiðarlegan hátt.
  3. Börn eru vernduð og stutt er við tækifæri til atvinnu, lærdóms og fjölskyldulífs.
  4. Grunnréttindi starfsfólks eru virt.
  5. Starfsfólk fær frítíma, getur treyst á launagreiðslur og fær tækifæri til að þróa hæfni sína.
  6. Gætt er að heilsu og öryggi starfsfólks.
  7. Starfsaðstaða og híbýli eru viðunandi.
  8. Passað er upp á jörðina.
  9. Auðlindum er stýrt á sjálfbæran hátt og sem hluta af hringrás, þar á meðal vatni og úrgangi.
  10. Dýr lifa við mannúðlegar aðstæður.
Allar 10 grunnreglur IWAY eru studdar með IWAY kröfum. Ef þú vilt vita meira um IWAY kröfurnar, kíktu þá á IWAY staðalinn og viðkomandi IWAY kafla.
IWAY grunnreglurnar byggja á alþjóðlega viðurkenndum stöðlum og grunnreglum, eins og leiðbeinandi grunnreglum Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi (UNGPs), 10 grunnreglum UN Global Compact, heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (SDGs) og aldarafmælisyfirlýsingu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um framtíð vinnunnar, svo eitthvað sé nefnt.
Að þróast í samvinnu við birgja og þjónustuaðila IKEA er kjarninn í nálgun IWAY. Saman stefnum við að því að ná sömu markmiðum – að tryggja ábyrg innkaup og stuðla að sjálfbærari virðiskeðju IKEA. Við skilgreinum lágmarksskyldukröfur en hvetjum birgjana okkar til að gera enn betur. Til þess notum við þrepaskiptingu fyrir IWAY kröfurnar sem hjálpar birgjum að halda áfram að bæta sig og þróast í tengslum við IWAY málefni.
 
 
  
 
Alltaf að bæta sig – með IKEA leiðinni
Við höfum unnið með IWAY síðan 2000 og erum alltaf að endurskoða kerfið svo það sé í takt við tímann, endurspegli breytingar og áskoranir heimsins og styðji við skuldbindingar í sjálfbærni- og birgðastefnu IKEA.
Í dag erum við að vinna með IWAY 6, sem var kynnt birgjum í september 2020. Þessi nýjasta útgáfa af IWAY er heildaruppfærsla á kerfinu, sem innleiddi betra verklag og ný viðfangsefni, eins og líffræðilega fjölbreytni og verndun náttúruauðlinda, velferð dýra og meiri áherslu á starfsþróun.
Mikilvæg breyting sem kom með IWAY 6 er að færa áhersluna úr því taka bara út birgjana okkar yfir í að efla stuðninginn við þá til að ná sem bestum árangri, bæði núna og í framtíðinni. Þetta snýst bæði um að tryggja að kröfur IWAY séu uppfylltar en líka að styðja við stöðuga og sjálfbæra þróun.
Við viljum vera jákvætt afl fyrir einstaklinga, samfélagið og jörðina í gegnum alla virðiskeðju IKEA. Þetta þýðir að við erum að innleiða IWAY lengra niður virðiskeðju IKEA, til undirbirgja beinu birgjanna okkar, alla leið að uppruna hráefnanna. Við erum rétt að byrja þessa vegferð og vinnum að þessu með birgjunum okkar, IKEA teymum og öðrum ytri hagsmunaaðilum.
Við viljum að IKEA sé fyrirmynd um hvernig fyrirtæki getur starfað á ábyrgan hátt. IWAY hjálpar til við að byggja upp sterkan sjálfbæran grunn fyrir virðiskeðju IKEA og stöðuga þróun hjá okkur og birgjunum okkar.
 
 
 
 

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X