KNOXHULT eldhús
KNOXHULT eldhúsið samanstendur af tilbúnum einingum sem þú getur raðað saman að vild. Með því að bæta við LAGAN heimilistækjum færð þú fullbúið eldhús sem uppfyllir allt sem þarf í eldhúsið á lágu verði. Bættu við vaski, blöndunartæki, hnúðum og höldum að eigin vali. Tilbúnu einingarnar eru svo einfaldar í uppsetningu að þú getur sett upp fullbúið eldhús samdægurs.
Teiknaðu KNOXHULT eldhúsið þitt
Ábyrgðarskilmálar fyrir eldhús
Miklar kröfur eru gerðar til eldhússins í daglegu lífi. Til að tryggja að eldhúsinnréttingin þoli mikla þyngd, háan hita og daglega notkun eru eldhúsin okkar vandlega prófuð.
Við bjóðum þér 5 ára ábyrgð, sem nær yfir galla í efni og framleiðslu á KNOXHULT eldhúsum.