795,-
795
Hugleiðingar hönnuða
Francis Cayouette, hönnuður
Ég vildi hanna VARIERA hnífaparabakkann þannig að hann gæti lagað sig að því hvernig hver og einn vill nota hann og passað þannig í flest eldhús. Hann er einfaldur, hagnýtur og fallegur, með útdraganlegum búnaði sem bætir við aukahólfum þegar þörf krefur. Lágar brúnir halda hlutunum á sínum stað án þess að takmarka pláss fyrir lengri áhöld. Ég vona að hann hjálpi fólki að skapa ró og reglu í skúffunum sínum, um leið og hann gefur tilfinningu fyrir því að hugsað hafi verið fyrir hverju smáatriði.
Eiginleikar
Komdu skipulagi á skúffurnar
Sama hvað þú hefur mikið pláss þá halda VARIERA skipulagsvörur öllu í röð og reglu. Hnífaparabakkinn passar í IKEA skúffur (40–60 cm, eða 80 cm með áhaldabakkanum) og flestar aðrar eldhússkúffur. Auðvelt er að koma honum fyrir, færa til og stilla og hann heldur öllu á sínum stað, allt frá hnífapörum og kryddi til penna – svo þú þurfir ekki að róta í skúffunum. Snjall, einfaldur og hagnýtur – auðveldar þér að halda skúffunum snyrtilegum dag eftir dag.